08 nóvember 2006

Um rafraus

Rafrausarsíðan mín á að endurspeggla mig. Hún á að sýna hver ég er og í hvað ég eyði tímanum mínum á netinu.

Allir þeir hlekkir sem ég dunda við að lesa, hvort sem það eru önnur rafraus eða skemmtiefni. Það á að vera hlekkur yfir á myndasíðu þar sem ég set myndir af mínu daglega lífi reglulega.

Og síðan verður rausið að vera. Hið daglega/vikulega raus um hitt og þetta.

Ég verð að þróa það verulega

06 nóvember 2006

Fikt

Já það er margt sem maður er sáttur við í þessu. En það er margt að. Er ekki nógu sáttur við að ég geti ekki uppfært mitt gamla blogg.

Mun eflaust geta gert það eftir einhvern tíma en ég vil auðvitað fá það núna!

04 nóvember 2006

Netið

Hefur ég sagtykkur að ég elska Internetið? Jæja ef ég hef ekki sagt ykkur það áður þá erég að segja ykkur það núna

ÉG ELSKA INTERNETIÐ OG ÞAÐ SEM ÞAÐ HEFUR UPP Á BJÓÐA!